Merki klúbbsins
Tillögur að merki klúbbsins
Á stofnári Golfklúbbs Hraunborga ræddu þeir Ingvi Rúnar Einarsson aðal hvatamaður að stofnun klúbbsins og fyrsti formaður hans og Einar D. G. Gunnlaugsson saman um það að nauðsynlegt væri að klúbburinn hefði sitt eigið merki. Einar D. G. Gunnlaugsson bauðst til þess að koma með tillögur að merki klúbbsins.
Merkið einróma samþykkt 2013
Á miðju ári 2013 lagði Einar fram tillögu að merki klúbbsins sem Ingvi lagði fyrir nýkjörna stjórn klúbbsins og var merkið einróma samþykkt.
Einar D. G. Gunnlaugsson færði þá klúbbnum merkið að gjöf.
Til gamans hafa gárungarnir sagt að merkið sé sennilega eina merkið sem taki tillit til rétthentra og örvhentra golfspilara með tilvísun í kylfurnar í merkinu.
Árið 2025 var afráðið að endurnýja merkið til að auðvelda notkun þess á prentefni og varning.
Nýja merkið er tvílitt og hentar betur í ofangreind verkefni. Eldra merki klúbbsins og sögu þess verður áfram haldið á lofti og ber að þakka það frumkvöðlastarf sem stofnendur inntu af hendi á upphafsárum klúbbsins.
