Vallarupplýsingar
Vallareftirlit
Engir fastir vallarstarfsmenn eru á vellinum en stjórn og nefndir klúbbsins sinna vallareftirliti. Leikmenn geta átt von á vera beðnir um að staðfesta félagsaðild eða greiðslu vallargjalds. Leikmenn sem ekki geta staðfest félagsaðild eða greiðslu vallargjalds geta átt von á að vera vísað af vellinum.
Staðarreglur
- Girðingar eru vallarmörk.
- Leyfilegt er að færa boltann á flötum um púttershaus og stilla upp, þó ekki nær holu. Færa má um eina kylfulengd á brautum, ekki nær holu.
- Ef græðlingar eða svæði sem afmörkuð eru fyrir slíkt trufla stöðu eða sveiflu skal láta boltann falla innan kylfulengdar frá þeim stað sem truflun er ekki fyrir hendi.
- Ef bolti er sleginn út fyrir vallarmörk ber að endurtaka höggið gegn einu víti.
- Ef bolti finnst ekki eftir þriggja mínútna leit, má láta nýjan bolta falla á braut á móts við staðinn þar sem tíndi boltinn er, gegn tveimur vítum. Einnig má endurtaka höggið frá þeim stað sem slegið var upphaflega gegn einu vítishöggi.
- Rauðir, gulir og bláir hælar, teigmerki, teigskilti, fjarlægðarhælar, auglýsingaskilti, bekkir og búnaður til vökvunar á vellinum eru óhreyfanlegar hindranir.
Umgengnisreglur
Á Golfvelli Hraunborga skal fara að öllum viðurkenndum golfreglum.
Völlurinn er hirtur reglulega og haldið við. Salerni er á staðnum og aðstaða til að setjast niður. Völlurinn er ekki mannaður og er treyst á heiðarleika kylfinga varðandi umgengni og vallargjöld. Völlurinn er nú í Golfsambandi Íslands (GSÍ) og reiknast til forgjafar. Völlinn er hægt að finna í Garmin appinu.
Eftirfarandi reglur gilda:
- Boltaför skulu löguð á flötum og torfusneplar settir á sinn stað.
- Hleypa skal fram úr ef hægist á spilahraða eða ef verið er að leita að bolta.
- Leikhraða skal haldið.
- Nota ber ruslafötur og ekki henda rusli svo sem munntóbakspúðum, sígarettum , matarleifum eða umbúðum á völlinn.
- Hámark fjögur í holli og hver með sitt sett.
- Kerrur og golfpoka skal ekki fara með inn á flatir eða teiga.
- Reglur um golfbílanotkun skal virða en golfbílar eru ekki leyfðir að vori og snemmsumars meðan að jörð er viðkvæm.
- Skráning rástíma skal fara fram í Golfboxi og kylfingar melda sig með QR kóða í forrými vallarhúss sem er við völlinn.
- Lausir hundar eru ekki leyfðir á vellinum og að sjálfsögðu skal hirða upp eftir hunda séu þeir með í för í taumi.
- Börn skulu vera á vellinum með forráðamönnum og ekki ein síns liðs.
Berum virðingu fyrir íþróttinni, sýnum tillit og njótum golfleiksins.
Stjórn Golfklúbbs Hraunborga
Golfbílareglur
Notkun golfbíla er almennt heimil á vellinum. Akstur er eingöngu heimill á slegnu svæði. Óheimilt er að aka inn á flatir, upp á teiga, yfir nýtyrfð svæði, grund í aðgerð, glompur og karga.
Takmarkanir eða bann við notkun geta verið sett við ákveðnar aðstæður. Lokað er fyrir akstursaðgengi inn á völlinn þegar bann við notkun er í gildi og eru iðkendur beðnir um að virða það. Ef takmarkanir á notkun eru í gildi eru svæði sem verið er að hlífa afmörkuð með tógi sem er strengt milli hæla.
16 ára aldurstakmark er á notkun golfbíla. Notkun golfbíla er alfarið á ábyrgð umráðamanna og eru þeir ábyrgir fyrir meiðslum/skemmdum sem af notkun þeirra kann að hljótast. Akstur golfbíla er óheimill undir áhfrifum áfengis og lyfja.
Ætlast er til að leikmenn á golfbíl sýni af sér góða háttsemi og taki tillit til annara leikmanna á vellinum. Umráðamenn golfbíla sem sem fara ekki eftir reglum sem um notkun þeirra gilda eða eru uppvísir að vítaverðri háttsemi geta átt von á að vera vísað af vellinum.

