Rástímar
Golfklúbbur Hraunborga er meðlimur í Golfsambandi Íslands. Rástíma skal bóka í golfboxi Við treystum golfurum til að bera virðingu fyrir vellinum og starfseminni, ganga vel um og spila ekki án þess að greiða fyrir hringinn og skrá leik í golfboxi. Golfvöllurinn er opinn fyrir bæði félagsmenn og aðra áhugasama golfara sem vilja spila staka hringi á vellinum. Til að gerast félagi í Golfklúbbi Hraunborga skal senda beiðni á gkh@gkh.is með upplýsingum um nafn, kennitölu, síma og netfang. Í kjölfarið verður send krafa í heimabanka. Vinsamlegast leggið ekki beint inn á reikninginn. Greiða skal fyrir staka hringi í golfbox og kostar hringurinn 3500 kr. 15 ára og yngri spila frítt en það þarf að skrá þá í golfbox eigi að síður.
Golfvöllurinn er opinn fyrir bæði félagsmenn og aðra áhugasama golfara sem vilja spila staka hringi á vellinum.
Greiða skal fyrir staka hringi, þá greiða golfarar samkvæmt gjaldskrá Golfklúbbs Hraunborga, sjá nánar hér undir gjaldskrá.
Umgengnisreglur
Völlurinn er hirtur reglulega og haldið við. Salerni er á staðnum og aðstaða til að setjast niður. Völlurinn er ekki mannaður og er treyst á heiðarleika kylfinga varðandi umgengni og vallargjöld. Völlinn er hægt að finna í Garmin appinu.
Eftirfarandi reglur gilda:
- Boltaför skulu löguð á flötum og torfusneplar settir á sinn stað.
- Hleypa skal fram úr ef hægist á spilahraða eða ef verið er að leita að bolta.
- Leikhraða skal haldið.
- Nota ber ruslafötur og ekki henda rusli svo sem munntóbakspúðum, sígarettum , matarleifum eða umbúðum á völlinn.
- Hámark fjögur í holli og hver með sitt sett.
- Kerrur og golfpoka skal ekki fara með inn á flatir eða teiga.
- Reglur um golfbílanotkun skal virða en golfbílar eru ekki leyfðir að vori og snemmsumars meðan að jörð er viðkvæm.
- Greitt skal fyrir leik ÁÐUR en leikur er hafinn. Lagt er inn á reikning golfklúbbsins sem er: 0111 26 070091 700913-0230.
- Lausir hundar eru ekki leyfðir á vellinum og að sjálfsögðu skal hirða upp eftir hunda séu þeir með í för í taumi.
- Börn skulu vera á vellinum með forráðamönnum og ekki ein síns liðs.
Berum virðingu fyrir íþróttinni, sýnum tillit og njótum golfleiksins.
Stjórn Golfklúbbs Hraunborga
Umgengnisreglur
Staðarreglur
- Girðingar eru vallarmörk.
- Leyfilegt er að færa boltann á flötum um einn púttershaus og stilla upp, þó ekki nær holu.
- Færa má um eina kylfulengd á brautum.
- Ef græðlingar eða svæði sem afmörkuð eru fyrir slíkt trufla stöðu eða sveiflu má láta boltann falla innan kylfulengdar frá þeim stað sem truflun er ekki fyrir hendi. Þó ekki nær holu. Án vítis.
- Ef boltinn er sleginn út fyrir vallarmörk ber að endurtaka höggið gegn einu víti.
- Ef bolti finnst ekki eftir þriggja mínútna leit, má láta nýjan bolta falla á braut á móts við staðinn þar sem tíndi boltinn er, gegn tveimur vítum. Það má líka fara þangað sem týndi boltinn var sleginn gegn einu víti.
- Rauðir, gulir og bláir hælar, teigmerki, teigskilti, fjarlægðarhælar, auglýsingaskilti, bekkir og búnaður til vökvunar á vellinum eru óhreyfanlegar hindranir.
Markmið Golfklúbbs Hraunborga er að stuðla að golfíþróttinni og gefa öllum aldurshópum tækifæri á því að spila þessa frábæru íþrótt fyrir sanngjarnt verð og í skemmtilegum félagsskap.
Golfvöllurinn er opin fyrir öllum, þ.e.a.s. bæði fyrir félagsmenn og aðra áhugasama golfara sem vilja spila staka hringi á vellinum, sjá nánar hér undir gjaldskrá.

