Um Klúbbinn

Golfklúbbur Hraunborga var stofnaður árið 2013

Golfklúbbur Hraunborga var stofnaður árið 2013 og er félagasamtök um golfvöllinn í Hraunborgum í Grímsnes og Grafningshrepp. Rekstur vallarins er á landi Sjómannadagsráðs. Öll vinna í kring um starfsemi vallarins er gerð í sjálfboðavinnu.

Skemmtilegur par 9 Golfvöllur

Golfvöllurinn er skemmtilegur 9 holu, par 3 völlur sem hentar öllum að spila, en á vellinum hafa margir stigið sín fyrstu skref í golfíþróttinni.

Markmið Golfklúbbs Hraunborga

Markmið Golfklúbbs Hraunborga er að stuðla að golfíþróttinni og gefa öllum aldurshópum tækifæri á því að spila þessa frábæru íþrótt fyrir sanngjarnt verð og í skemmtilegum félagsskap.

Golfvöllurinn er opin fyrir öllum, þ.e.a.s. bæði fyrir félagsmenn og aðra áhugasama golfara sem vilja spila staka hringi á vellinum, en verðskrá golfklúbbsins má finna hér gjaldskrá.

Rástímar

Rástíma þarf ekki að panta hjá okkur nema um stærri hópa sé að ræða.  Senda skal fyrirspurn á hraungolf@gmail.com til að fá nánari upplýsingar. Lausaganga hunda er stranglega bönnuð á vellinum.

Golfsumarið 2026 munum við halda nokkur mót t.d. Bændaglímu, Tveggja kylfumót, Meistaramót Hraunborga, sjá nánar hér undir mót.

​Golfskálinn okkar er við golfvöllinn og þar er salernisaðstaða og pallur með borðum og stólum.

Meðlimir

Meðlimir í golfklúbbi Hraunborga eru nú 200 talsins. Flestir eiga orlofshús í Hraunborgum en félagar koma einnig úr nágrannabyggðum og víða að. Aðild stendur öllum opin.

Hlökkum til að sjá ykkur á vellinum í sumar!