Mót sumarið 2025

1) Jónsmessumót – 21. júní, opið mót 4 manna Texas Scramble.
2) Meistaramót GKH  19. júlí (lokað mót) höggleikur með forgjöf.
3) Skemmtimót 23. ágúst. Punktakeppni með forgjöf og tveimur kylfum
4) Kænumótið 2025/bændaglíma. Opið mót tveggja manna Texas Scramble. (Dagsetning kemur innan skamms).
Mótin eru bæði fyrir félagsmenn og svo fyrir alla velunnara okkar.

Nánari upplýsinga um mótin verða kynnt síðar, í tölvupósti til aðildarfélaga, hér á síðunni og á facebook.
GKH heldur fjölda móta á hverju sumri og engin breyting á því þetta sumarið.

GKH leggur mikinn metnað í að gera öll mót á vegum klúbbsins sem best úr garði. Með því móti leitast klúbburinn við að skapa sér jákvæða ímynd meðal kylfinga og auka á ánægjulega þátttöku í mótum klúbbsins. Til þess að svo megi vera þarf sterkan hóp til þess að stýra þessu mikilvæga starfi viðburðar- og mótanefndar. Viðburðar- og mótanefnd klúbbsins stýrir öllu mótahaldi og skipuleggur öll mót sumarsins ásamt því að útvega teyggjafir, vinninga og veitingar.