Kæru meðlimir og aðrir kylfingar.
Sumarsólstöður og sumargleði. Jónsmessumót Golfklúbbs Hraunborga verður haldið laugardaginn 20. júní klukkan 10.00
Teiggjafir og borgarar af grillinu fyrir alla. Við spilum fjögurra manna Texas Scramble og njótum í blíðunni í Hraunborgum.
Mótið er opið fyrir alla og skráning hefst á morgun 16. júní klukkan 13:00 í golfbox.
Því miður er ekki tekið við skráningum annars staðar en í Golfboxinu. Verð aðeins kr. 4500 á mann.
Við hlökkum mikið til að sjá ykkur.
Kveðja Mótanefnd
