All Posts By

stefan

Vinnudagur GKH 9 maí

Eftir Fréttir

Vinnudagur GKH fór fram laugardaginn 9. maí sl. í mildu vorveðri.

Meðlimir komu og hristu fram úr erminni niðursetningu 50 aspa meðfram heimreiðinni að klúbbhúsinu.

Flatirnar voru sandaðar sem og teigar og áburður borinn á.

Svarta perlan var þrifin og snurfusuð og grillað var í lokin.

 

Mótin í golfklúbbi Hraunborga eru ávallt skemmtileg.

Eftir Fréttir

Við vekjum athygli á að klúbbstarf okkar er skemmtilegt og lifandi. Við vinnum með mottóið að maður sé manns gaman og höldum skemmtileg mót yfir allt sumarið. Hér gefur að lita nokrar skemmtilegar myndir frá síðustu mótun en fyrsta mótið verður haldið Hvítasunnudag 24.05.2026 Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært að taka þátt.

Framkvæmdir halda áfram

Eftir Fréttir

Nú standa yfir framkvæmdir við gerð sandþróar við völlinn. Vallarstarf okkar er metnaðarfullt og við höfum á s.l. árum fjárfest í tækjum og tólum til að vera sjálfbær í rekstri vallarins. Nú þegar að frost fór að fara úr jörðu var hafist handa við að grafa fyrir og steypa sandþróna enda viljum við að hægt sé að sanda völlinn þegar að þarf og sinna honum af alúð. Við keyptum nýjan gatara í fyrra, sláttuvél svo ekki sé minnst á róbotinn okkar Robba okkar sem slær völlinn og er óþreytandi, en það er hann Sigurður Ingvar vallarstjóri líka og lætur ekki deigan síða við undirbúning opnunar.

Ódýrast að spila golf í Hraunborgum.

Eftir Fréttir

Golfklúbbur Hraunborga er kominn í GSÍ og er það góður áfangi. Nú á vordögum verður völlurinn  mældur út og forgjöfin á völlinn verður staðfest. Þegar klúbburinn var stofnaður þann 29. ágúst 2013 var það draumur sporgöngumannana að gera svo. Framtíðin mun svo skera úr um hvort að völlurinn verði stækkaður en nægt er landið til þess og eins menn vita er staðsetning vallarins frábær og veðursældin mikil. Nú erum við í stjórninni að setja alla inn í golfboxið og biðjum við fólk um að sína biðlund, þetta mun allt hafast á endanum.Við minnum á að árgjald okkar er kr. 27.000 sem er það lægsta fyrir aðild að golfboxi og ótakmörkuðu golfi á velli á Íslandi.